Leiðtogi framleiðsluteymis í steypuskála / Coach for the Production Team in the Casthouse
ExternalPrepare for this interview
EliteAI-generated questions, company research, and talking points tailored to this role
About the role
Mótaðu veröldina þína Sem starfsmaður Alcoa verður þú mikilvægur hluti af tilgangi fyrirtækisins: að nýta tækifærin til að ná árangri. Í okkar augum er sérhver starfsmaður Alcoa teymismaður, hugmyndaskapari og heimsmótandi. Alcoa Fjarðaál leitar að jákvæðum og drífandi einstaklingi í starf leiðtoga framleiðsluteymis í steypuskála. Meginverkefni leiðtogans eru að leiða teymi, sinna mönnun og öðrum stjórnunartengdum verkefnum, fylgja eftir framleiðsluáætlunum og taka virkan þátt í daglegum verkefnum við framleiðslu. Almennt um starfið Markmið og tilgangur starfs Að leiðbeina og efla áhugasama, ábyrga og hæfa einstaklinga innan framleiðsluteymis. Teymis sem leita r stöðugt leiða til að bæta öryggi og heilsu, stuðla að starfsánægju, lágmarka losun og uppfylla þarfir viðskiptavina með því að bæta framleiðsluferli , viðhalda gæðum, auka áreiðanleika og lágmarka sóun. Verksvið Lágmarkar áhættu og vinnur að öruggu og heilsusamlegu starfsumhverfi. Leiðbeinir einstaklingum í teyminu til að styrkja þá og efla. Vinnur að góðum starfsanda, eflir og hvetur sitt teymi til dáða. Framfylgir framleiðsluáætlunum. Fylgir eftir þeim væntingum sem gerðar eru til framleiðslustarfsmanna eins og þær eru skilgreindar í aðal- og aukahlutverkalýsingum. Tekur þátt í ráðningu nýrra starfsmanna. Vinnur að úrlausn ágreiningsmála í samvinnu við aðra stjórnendur og mannauðsteymi . Er leiðandi í umbótastarfi og rannsóknum atvika til að auka öryggi og bæta framleiðsluferla. Sinnir verkefnum innan síns ferlis. Sér til þess að umgengni á sínu framleiðslusvæði sé til fyrirmyndar. Dagleg verk Hefur viðveru á framleiðslugólfi að jafnaði 50% af sínum vinnutíma . Veitir endurgjöf á hverri vakt til þeirra starfsmanna sem eru á vakt hverju sinni. Gerir úttektir á hverri vakt á öryggismálum , umhverfi, verklagi , umgengni o.fl . Fylgir eftir starfsþróun starfsmanna og tekur að lágmarki tvö starfsþróunarsamtöl við hvern starfsmann á ári. Tryggir rétta mönnun vakthópa, þjálfun þeirra og vinnuskil. Ábyrgð í starfi Leiðtogi starfar í umboði framkvæmdastjóra ferlis. Meginábyrgð leiðtoga er að halda utanum framleiðsluteymi. Leiðtogi b er ábyrgð verkstjóra skv. lögum nr. 46/1980, Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Grunnkröfur Menntun og/eða réttindi sem krafist er Ekki eru gerð ar sérstakar kröfur um menntun, en öll menntun sem gæti nýst í starfi er kostur. Reynsla sem krafist er S tarfsreynsla á vinnumarkaði, a.m.k. 5 ár. Starfsreynsla í framleiðslufyrirtæki er kostur. Stjórnunarreynsla er kostur. Hæfni sem krafist er Heilindi: Hæfni til að á vinn a sér traust innan f yrirtækisins með því að vinn a samkvæm t gildum og vinnustaðarsáttmála Alcoa Fjarðaáls. Leiðtogahæfni: Hæfni til að s ýn a ábyrgð í verki, stuðla að öflugri liðsheild , sýna frumkvæði, leiða breytingar og fá samstarfsfólk til liðs við sig. Samskiptahæfni: Hæfni til að skapa jákvæða menningu á vinnustaðnum og hvetja starfsfólk til dáða. Hæfni til að tryggja upplýsingaflæði og viðhafa gagnsæi í ákvarðanatöku. Árangursmiðun: Hefur hæfni til að tryggja skilvirka framkvæmd áætlana og eftirfylgni með verkum. Góð almenn tölvufærni og geta til að tileinka sér notkun tölvukerfa. Skipulagshæfileikar. Samskiptafærn i og samstarfsaðilar í starfinu S amskipti við framl eiðslustarfsmenn, tækniteymi, stoð- og stjórnunarteymi. Samskipti við ytri bi rgja og þjónustuaðila. Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar. Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil. Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki. Frekari upplýsingar um starfið veitir Kolfinna Finnsdóttir, sérfræðingur í ráðningum í gegnum netfangið kolfinna.finnsdottir@alcoa.com Við erum gildisdrifin, knúin framtíðarsýn og sameinuð af tilgangi okkar að nýta tækifærin til að ná árangri. Skuldbindingar okkar varðandi þátttöku, fjölbreytni og jöfnuð fela í sér að bjóða upp á trausta vinnustaði þar sem öryggi og virðing eru í heiðri höfð og allir einstaklingar eru án aðgreiningar, lausir við mismunun, einelti og áreitni og að vinnustaðir okkar endurspegli fjölbreytileika samfélaganna sem við störfum í. Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um. Hægt er að sækja um starfið á Alcoa.is. Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí . ________________________________________________________________________________ Alcoa Fjarðaál is seeking a positive and driven individual for the role of Coach for the production team in the casthouse. The main responsibilities of the role include leading a team, overseeing staffing and other management-related tasks, following up on production plans, and ac
Your Match
How well this role fits your profile.
Company Intel
What employees say
Worked at Alcoa? Share your experience